Back to All Events

Hljóð í ljóði - útgáfutónleikar (IS)

  • Austurbær 37 Snorrabraut Reykjavík, Reykjavíkurborg, 105 Iceland (map)

Útgáfa hljóðritunar á nýjum tónsmíðar eftir Þórdísi Gerði Jónsdóttur, sellóleikara, sem allar eru innblásnar af íslenskum ljóðum, gömlum og nýjum. Markmið tónsmíðanna er að fanga stemningu hvers ljóðs og þýða og framlengja yfir í tónsmíðar. Skáldin sem eiga ljóð í verkefninu eru Gerður Kristný, Ragnar Helgi Ólafsson, Ásta Sigurðardóttir, Steinn Steinnarr, Davíð Stefánsson og Steingrímur Thorsteinsson. Ólíkur stíll og form ljóðanna hafa, ekki síður en efnistök ljóðanna, orðið innblástur að tónsmíðunum sem eru misformfastar hvað varðar áferð og uppbyggingu. Með verkefninu heldur Þórdís áfram að þróa hlutverk sellósins sem leiðandi hljóðfæri í jazztónlist og spuna. Þá notar hún fjölbreytta reynslu sína sem flytjandi kammertónlistar til að færa nákvæmni og næmni sígildrar tónlistar yfir í spunatónlist.
Flytjendur eru auk Þórdísar á selló þeir Hilmar Jensson á rafgítar, Matthías Hemstock á slagverk, Birgir Steinn Theodórsson á kontrabassa og Óskar Guðjónsson á saxófón.

Previous
Previous
August 29

RGS Kvintett (IS)

Next
Next
August 29

LILJA (IS/NO)