Back to All Events

RGS Kvintett (IS)

  • Jómfrúin 4 Lækjargata Reykjavík, Reykjavíkurborg, 101 Iceland (map)

RGS kvintett er hugarfóstur baritónsaxófónleikarans Rósu Guðrúnar Sveinsdóttur. Kvintettinn flytur lagasmíðar og útsetningar eftir Rósu fyrir þrjá blásara, trommur og bassa en sú hljóðfæraskipan skapar áhugaverðan hljóm sem minnir kannski einna helst á Gerry Mulligan kvartettinn, sem frægur var fyrir að starfa án hljómahljóðfæra. Lúðrarnir þjóna tvíþættum tilgangi, þeir gegna bæði laglínuhlutverki og veita harmonískan undirleik, sem leiðir til fjölhæfrar og grípandi tónlistaráferðar. Hljómsveitin miðar að því að blanda saman djasshefð við ferskar, kraftmiklar útsetningar og bjóða upp á einstaka hlustunarupplifun sem undirstrikar tjáningargetu lúðra í minna samspili.

Kvintettinn skipa ásamt Rósu þeir Björgvin Ragnar Hjálmarsson á tenor sax, Magnús Trygvason Eliassen á trommur, Snorri Skúlason á kontrabassa og Tumi Torfason á trompet.

Kynning á hljómsveitarmeðlimum.

Rósa Guðrún Sveinsdóttir er söngkona, saxófónleikari og flautuleikari. Hún gaf út sína fyrstu sóló plötu árið 2014 sem ber nafnið Strengur Stranda. Á þeirri plötu voru hennar eigin tónsmíðar og útsetningar fyrir strengjakvintett, rytmasveit og söng. Önnur sólóplata hennar, Drangar, kom út 2025 og var nokkurs konar framhald af þeirri fyrri. Nú má segja að Rósa hafi undið kvæði sínu í kross og vinnur með samspil lúðra í þessu nýja verkefni.

Björgvin Ragnar Hjálmarsson lauk Bachelor prófi frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Stokkhólmi vorið 2022. Björgvin hefur tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum á sviði jazz- og popptónlistar undanfarin ár. Hann hefur m.a. komið fram með Stórsveit Reykjavíkur, SJS Big Band, Amabadama, Júníus Meyvant o.fl. Árið 2025 var Björgvin sendur fyrir hönd RÚV sem fulltrúi Íslands í stórsveitarverkefni á vegum EBU í maí 2025.

Magnús Trygvason Eliassen er trommuleikarinn knái sem vart þarf að kynna. Hann er gríðarlega virkur í íslensku tónlistarsenunni og spilar einna helst með hljómsveitunum ADHD og Moses Hightower. Hann er þó iðinn í allskyns verkefnum og kemur reglulega fram í eigin verkefnum og með fjölda tónlistarfólks á Íslandi sem erlendis.

Snorri Skúlason kontrabassaleikari er nýlega komin heima úr námi í Hollandi og hefur látið til sín taka í íslensku jazztónlistarsenuna. Hann hefur unnið í hinum ýmsu verkefnum síðustu árin, meðal annars með sitt eigið tríó, Ragnheiði Gröndal, Inga Bjarna Skúlasyni og Einari Scheving. Hann spilar reglulega latínsveitinni Salsa kommúnunni.

Tumi Torfason er trompetleikari og tónskáld sem lifir og hrærist í íslensku tónlistarsenunni. Þar leiðir hann ýmis verkefni sem öll hverfast um frumsamda tónlist og spuna út frá henni. Auk hljómsveita sem koma fram undir hans eigin nafni má til dæmis nefna blásaraflokkinn Tu Ha? Tu Bjö! og dúó hans með Bjarna Má Ingólfssyni gítarleikara. Tumi nam jazzhljóðfæraleik við Tónlistarskóla FÍH og Konunglega tónlistarháskólann KMH í Stokkhólmi en í vor lýkur hann meistaranámi í hljóðfæratónsmíðum við Listaháskóla Íslands.

ÓKEYPIS AÐGANGUR

Previous
Previous
August 29

Jazz hrekkur (IS)

Next
Next
August 29

Hljóð í ljóði - útgáfutónleikar (IS)