Tu Ha? Tu Bjö! er rannsóknar- og tilraunaverkefni fjögurra blásara sem hefur leitt þá um ótroðnar slóðir í tónsmíðum og spuna. Samkomulag milli ólíkra tónskálda en jafnframt ólíkra flytjenda. Útkomunni mætti líkja við fiskitorfu sem syndir um samhæfð og samtaka en jafnframt frjáls og af því er virðist stefnulaus. Hún syndir bæði í grynningunum og í dýpinu, allt frá litríka kóralrifinu niður á myrkann hafsbotninn.
Tu Ha? Tu Bjö! hefur síðustu misseri þrætt hina ýmsu tónleikastaði Reykjavíkurborgar, svo sem Mengi, Iðnó, Hannesarholt og Djúpið og leikið tónlist sína fyrir djarfa tónleikagesti. Fyrir þá sem vilja heldur hlusta heima er fyrsta breiðskífa sveitarinnar væntanleg en þar má heyra góðkunna slagara en auk þess einstök augnablik fönguð voru á segulband.
Tumi Torfason : trompet
Hannes Arason : trompet
Tumi Árnason : tenór saxófónn
Björgvin Ragnar Hjálmarsson : tenór saxófónn