Nemendur söngdeildar MÍT og Stórsveit MÍT flytja úrval laga af ferli systkinanna Ellyjar Vilhjálmsdóttur og Vilhjálms Vilhjálmssonar.
Nemendur rytmískrar söngdeildar Menntaskóla í tónlist ásamt Stórsveit MÍT heiðra söngsystkynin Elly Vilhjálms og Vilhjálm Vilhjálms Jazzhátíð Reykjavíkur. Tónleikarnir verða sunnudaginn 30. ágúst í Iðnó klukkan 18:00 og er aðgangur ókeypis. Tónlistarstjóri og stjórnandi stórsveitar MÍT er Samúel Jón Samúelsson og um söngþjálfun sér Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir. Á efniskrá verður úrval laga af ferli systkinanna Ellyar og Villa Vilhjálms.