Back to All Events

Kári Egilsson & Nico Moreaux Duo (IS/FR)

  • Hótel Holt 37 Bergstaðastræti Reykjavík, Reykjavíkurborg, 101 Iceland (map)

Kári Egilsson & Nico Moreaux Duo (IS/FR)

Hótel Holt
Miðvikudaginn 26. ágúst
16:30
4500 kr.

Píanóleikarinn Kári Egilsson og bassaleikarinn Nico Moreaux leika listir sínar á Holtinu. Síðustu ár hafa þeir myndað náið samstarf sem einkennist af mikilli næmni og hlustun. Prógrammið verður fjölbreytt og skemmtilegt, blanda af lögum eftir félagana og vel völdum tökulögum. 

Árið 2023 gaf Kári út jazzplötuna Óróapúls, með Nico á bassa, og á komandi ári er önnur plata á leiðinni með frumsaminni jazztónlist eftir Kára. Kári var valinn Bjartasta vonin 2024 og hefur líka gefið út tvær poppplötur. Hann stundar nú nám við Berklee tónlistarskólann í Bandaríkjunum.

Nico Moreaux hefur spilað með mörgum helstu tónlistarmönnum Íslands og þekktum erlendum jazzistum á borð við Chris Cheek, Tigran Hamasyan, Jorge Rossy og Jeff Ballard.

Previous
Previous
August 25

Andrés Þór Tríó - Relocate, útgáfutónleikar (IS)

Next
Next
August 26

Tríó Sigurðar Flosasonar (IS)