Back to All Events
Frelsissveitin ásamt Davíð Þór Jónssyni (IS)
Harpa, Norðurljós
Föstudaginn 28. ágúst
19:00
Frelsissveitin frumflytur nýjan píanókonsert eftir Hauk Gröndal, saminn sérstaklega fyrir Davíð Þór Jónsson og sveitina. Verkið er um 50 mínútur að lengd og skiptist í fimm þætti. Þar mætast fjölbreytt hljóðlitbrigði, frjáls spuni og skrifaðir kaflar í kraftmikilli heild. Allar raddir sveitarinnar fá að njóta sín í nánu, nær telepatísku samspili nokkurra af fremstu hljóðfæraleikurum íslensks djass.
Flytjendur eru:
Davíð Þór Jónsson – píanó
Haukur Gröndal – saxófónn & klarinettur
Sólveig Magnúsdóttir – flautur
Óskar Guðjónsson – saxófónn
Ólafur Jónsson – saxófónn & bassaklarinett
Guðmundur Pétursson – gítar
Birgir Steinn Theódórsson – bassi
Matthías Hemstock – trommur, slagverk