Anna Gréta, Silva þórðar ásamt Ómari guðjónssyni (IS)
Iðnó
Sunnudaginn 30. ágúst
21:00
Anna Gréta er píanóleikari, söngkona og tónskáld sem hefur vakið athygli á Norðurlöndum og víðar. Hún hefur gefið út plöturnar Nightjar in the Northern Sky (2021) og Star of Spring (2024) á vegum ACT Music og hefur unnið Íslensku tónlistarverðlaunin þrisvar sinnum. Hún hefur skapað sér sterkan sess sem ein áhugaverðasta jazztónlistarkona sinnar kynslóðar.
Silva Þórðardóttir hefur um árabil verið meðal vinsælustu jazzradda landsins og vann á þessu ári Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir Jazzsöng ársins. Hún er annar meðlimur hins vinsæla tvíeykis Silva & Steini ásamt Steingrími Teague. Þau hafa gefið út þrjár plötur á síðustu fjórum árum og hafa lög þeirra verið streymt um sex milljón sinnum um allan heim. Silva kemur regulega fram með söngvarasamsteypunni Jazzkonum og mörgum af fremstu jazzflytjendum landsins. Hún gaf út sína fyrstu sólóplötu Skylark árið 2019 og önnur plata hennar, Þá uxu blóm, er væntanleg nú í haust.
Ómar Guðjónsson, gítar, bassa og pedal steel leikari hefur starfað með fjölmörgu tónlistarfólki og hljómsveitum frá unglingsaldri má þar nefna t.d Lón og ADHD og tekið þátt í fjölmörgu tónleikahaldi og upptökum innanlands sem og erlendis. Ómar hefur gefið út 6 sólóplötur undir sínu nafni á síðasta ári gaf hann út plötuna 210 sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin og hefur hann hlotið þau nokkrum sinnum á síðustu 13 áru
Silva Þórðardóttir - söngur
Anna Gréta - söngur, píanó og hljómborð
Ómar Guðjónsson - pedal steel og gítar