Back to All Events
Nú ætlum við, Ingibjörg, Sunna og Leifur, að vera með Jazz hrekk á Jazzhátíð Reykjavíkur og við hlökkum ofboðslega mikið til! Við ætlum að spila fyrir ykkur spriklandi nýja jazztónlist undir yfirskriftinni Jazzhrekkur en lögin fjalla um fyrirbæri tengd hrekkjavöku; drauga, nornir, afturgöngur og kóngulær. Við verðum með tvenna tónleika, kl. 12:00 og 13:30 laugardaginn 29. ágúst.
Það er ókeypis aðgangur en eina sem þið þurfið að gera er að panta miða í gegnum Tix.is.