Píanóleikarinn Ingi Bjarni Skúlason gaf út kvartett plötuna Hope í fyrra, og nú verða útgáfutónleikar á Jazzhátíð Reykjavíkur! Með Inga Bjarna leika þeir Hilmar Jensson á gítar, Magnús Trygvason Eliassen á trommur og hinn sænski Anders Jormin á kontrabassa. Það mætti segja að tónlistin á Hope sé lýrísk, en þó ert mikið svigrúm fyrir opna spunakafla innan verkanna. Tónleikagestir eru hvattir til að lesa um tilurð plötunnar og lög hennar hér: https://ingibjarni.com/hope
Sérstakur gestur er sænski bassaleikarinn Anders Jormin. Það er óhætt að segja að Anders sé einn færasti kontrabassaleikari Evrópu. Sem tónskáld þá hefur hann gefið út fjölda hljómplatna með eigin verkum, þ.á.m. á þýsku plötuútgáfunni ECM. Hann hefur einnig spilað með fremstu jazz tónlistarmönnum heims á borð við Bobo Stenson, Lee Konitz, Charles Lloyd, Paul Motian, Tomasz Stanko ofl.
Á íslensku tónlistarverðlaununum 2026 fékk platan Hope tilnefningu sem jazzplata ársins. Auk þess fékk lagið „Hægur dans“ af plötunni tilnefningu sem jazzlag ársins. Platan hefur fengið fínustu umfjöllun, þá bæði á íslenskum miðlum og í erlendum miðlum.
Hér að neðan er brot úr einni: „Hope is not simply an album; it is a quiet triumph, a testament to art’s enduring power to transform pain into something truly luminous. Each note feels deliberately placed, building a narrative that is both deeply personal and universally resonant. It invites you to lean in, to listen closely, and to find your reflections within its beautiful depths“ – All About Jazz (USA)
Back to All Events