Back to All Events
Frelsissveitin (Iceland’s Liberation Orchestra) frumflytur nýtt verk eftir Hauk Gröndal. Píanókonsert skrifaðan fyrir Davíð Þór Jónsson og Frelsissveitina. Verkið er ca. 50 mín. að lengd í 7 þáttum. Þar verður teflt fram ótal litbrigðum, frjálsum spuna og skrifuðum köflum. Raddir sveitarinnar fá allar að njóta sín í telepatísku samspil nokkurra af færustu spunahljóðfæraleikurum Íslandsjazzins.
Flytjendur eru:
Davíð Þór Jónsson | píanó
Haukur Gröndal | saxófónn
Óskar Guðjónsson | saxófónn
Ólafur Jónsson | saxófónn
Snorri Sigurðarson | trompet
Samúel J. Samúelsson | básúna
Birgir Steinn Theódórsson | bassi
Matthías Hemstock | trommur
Haukur Gröndal