Back to All Events

Havanablús Tómasar R | Los bomboneros

  • Harpa 2 Austurbakki Reykjavík, Reykjavíkurborg, 101 Iceland (map)

Los Bomboneros, hinir glaðbeittu sendiherrar íslenskrar latíntónlistar, koma fram á Jazzhátíð Reykjavíkur miðvikudaginn 26. ágúst kl. 21:00 í Hörpu, Norðurljósum. Þar stýrir Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir stórsveitarútgáfu hljómsveitarinnar, Los Bombasticos, sem mun flytja margar helstu perlur Tómasar R. Einarssonar en þennan ástsæla lagahöfund og bassaleikara má með sanni kalla Latínbónda Íslands.

Í lögum Tómasar frá meira en 40 ára ferli fléttast saman djass, íslenskur stormur og kúbanskur hiti. Á þessum óvenjulegu tónleikum munu helstu stórsveitarútsetjarar landsins klæða lögin í skæran búning.

Missið ekki af þessu einstaka tækifæri í Hörpu til að upplifa íslenska latínmúsík og stórsveitarkraft fléttast saman í töfrandi tónlistarupplifun!

Miðasala

Previous
Previous
August 26

KOSMONauci (PL)

Next
Next
August 27

Tríó Alberts Sölva