Back to All Events

Tómas Jónsson & Magnús Trygvason Eliassen: BEST á flest (IS)

  • Harpa 2 Austurbakki Reykjavík, Reykjavíkurborg, 101 Iceland (map)

Tómas Jónsson & Magnús Trygvason Eliassen: BEST á flest (IS)

Harpa, Norðurljós
Föstudaginn 28. ágúst
21:00

Tvíeykið Tómas Jónsson og Magnús Trygvason Eliassen hefur gefið út tvær hljómplötur, ferðast saman um allan heim og geim og tekið þátt í alls kyns ævintýrum, bæði saman og sitt í hvoru lagi. Þeir félagar munu flytja plötuna á Jazzhátíð Reykjavíkur í ár.

Magnús og Tómas taka enn á ný flugið með geimskipi sínu. Að þessu sinni sveimuðu þeir yfir landsvæðum Norður-Ameríku, eða réttara sagt yfir Bandaríkjum Norður-Ameríku. Þar var margt kynlegt að sjá og heyra.

Hljómplötuna, sem inniheldur fleiri lög en blaðsíður hinnar sálugu símaskrár, unnu þeir að á ferðalagi sínu um þessar slóðir. Upptökur fóru fram í hinum ýmsu tónlistarhúsum, klúbbum, útvarpsstöðvum, rútum, hótelherbergjum, hótellobbýum, skemmtistöðum, almenningsgörðum, hafnarboltavöllum, hljóðverum, fólksbílum, verslunum, á gatnamótum, veitingastöðum og við sundlaugarbakka, svo fátt eitt sé nefnt.

Stórskotalið listafólks kom að gerð plötunnar. Þar má meðal annars nefna Albert Finnbogason, Bjarna Þór Jensson, Carly Hoskins, Diner Diane, Ghostboi, Jökul Brynjarsson, Leanne Rosanne, Laurence Vidal, Luke Van Wyhe, Nönnu Hilmarsdóttur, Óskar Guðjónsson, Parking Lot Stew, Ragnar Þórhallsson, Rakeli Sigurðardóttur, The Pirates, Valdimar Kolbein Sigurjónsson og The Streets of NYC.

Previous
Previous
August 28

look north (FR/UK)

Next
Next
August 28

María Magnúsdóttir (Tónleikar til heiðurs söngkonum Rómönsku Ameríku) (IS)