Tríó saxófónleikarans Sölva Kolbeinssonar leikur efni af plötunni Collage sem kom út hjá Reykjavík Record Shop í lok árs 2025. Collage er fyrsta hljómplata Sölva eingöngu með eigin efni. Þetta er tilraunakenndur djass, innblásinn af tíma Sölva í Berlín og Kaupmannahöfn ásamt því að flytja aftur heim til Íslands. Lögin eru ólík og tákna mismunandi augnablik, myndir, hver og ein með eigin stemningu og sterk karaktereinkenni. Saman skapa myndirnar heild og þaðan kemur titill plötunnar -Collage. Ásamt Sölva koma fram gítarleikarinn Hilmar Jensson og slagverksleikarinn Magnús Trygvason Eliassen.
Tríóið varð til út frá dúói Sölva og Magnúsar en þeir voru paraðir saman við Hilmar á Djasshátíð 2020 og spiluðu þar stórskemmtilega tónleika. Til að byrja með spiluðu þeir sín uppáhalds lög eftir aðra en fókusinn færðist fljótlega yfir á tónsmíðar Sölva. Eftir að spila fleiri tónleika og prófa allskonar héldu þeir í hljóðver desember 2024. Nú er komin plata og meira á leiðinni!