Dagskrá – Events

Jazzhátíð Reykjavíkur/Reykjavik Jazz Festival. August 14.-29. 2010

Föstudagur/Friday – August 13, 2010

16.13 Rúv 1 -Beint/live Ókeypis/Free
Bein jazzútsending úr Útvarpshúsinu. Upptaktur að 21. Jazzhátíð Reykjavíkur
Live Jazz on Rúv 1 -FM 93.5
Open house at Efstaleiti 1. Live broadcast from the upbeat to the 21st Reykjavik Jazz Festival

18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
Kvöldið/EveningRisið/The Attic, Tryggvagata 20 Aðeins fyrir Jazzpassa eigendur og listamenn hátíðarinnar/Only for Jazz Pass owners and artists
Upptaktur að Jazzhátíð 2010 á þessum nýuppgerða tónleikastað.Upbeat to the Reykjavik Jazz Festival at this recently re-juvinated live music spot.
jazzpassar

Laugardagur/Saturday – August 14

17.00 Þjóðmenningarhús/Culture House, Hverfisgata 15
Setning 21. Jazzhátíðar Reykjavíkur Ókeypis/Free
Opening Ceremony of the 21st Reykjavik Jazz Festival
18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
20.00 Þjóðmenningarhús/Culture House, Hverfisgata 15 Kr 2000
Bill Evans tribute – Agnar Már Magnússon pínaóleikari flytur ásamt tríói sínu splunkunýja þakkargjörð til eins mesta meistara jazzpíanósins. Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á bassa og Magnús Trygvason Elíassen á trommur.
Pianist Agnar Már Magnússon’s trio pays tribute to one of the most influential pianists in jazz history.

Pianist Agnar Már pays tribute to Bill Evans

Pianist Agnar Már pays tribute to Bill Evans


21.00 Broadway, Ármúla 9 Kr 2900
Don Randi Quest – Píanisti stjarnanna heimsækir Ísland ásamt hljómsveit sinni til að hljóðrita og halda tónleika með Geir Ólafssyni. Það hefur heyrst að gestasöngvarar þetta kvöld verði úr flokki stórsöngvara óperunnar. Don Randi er – auk þess að vera einn eftirsóttasti píanistinn í Los Angels, eigandi hins fræga tónlistarklúbbs Baked Potato. Með Don Randi kemur einnig hinn frábæri trommari Tom Brechtlein, sem hefur í gegnum tíðina unnið með stjórstjörnum jazzins þám Wayne Shorter og Chick Corea. Gítarleikarinn John DePatie er einnig með í þessum félagsskap en hann hefur til langs tíma verið gítarleikari Nancy Sinatra.
Pianist to the stars for decades, Don Randi visits Iceland to record and play with singer Geir Ólafsson. Don Randi is besides being one of Los Angeles most sought after pianists and arrangers, also one of the proprietors of famed music club The Baked Potato. Also in the Quest are drummer Tom Brechtlein and guitarist John DePatie, both seasoned veterans on the international jazz scene.
Don Randi in session in the 60's.

Don Randi in session in the 60's.


22.00 Venue, Tryggvagata 20 Kr 1500

Sunnudagur/Sunday – August 15

14.00Norræna húsið/Nordic House Ókeypis/Free
Spennandi tilraun fyrir alla fjölskylduna. Spilaðu á hljóðfæri á nýjan og spennandi máta.En exciting experiment for the whole family. Play an instrument under new and peculiar circumstances.

Barnasmiðja Jazzhátíðar er unnin í samvinnu við Tónastöðina

Reykjavik Jazz Festival and Tónastöðin. Partners in sound experiments.


18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00Norræna húsið/Nordic HouseKr 1500
Frelsissveit hins nýja Íslands. Haukur Gröndal stýrir flutningi á tónlist kollega síns Óskars Guðjónssonar, sem innblásin(n) er af atburðum líðandi stundar. This large ensemble is lead by saxophonist Haukur Gröndal and the music is by his colleague Óskar Guðjónsson – inspired by current events. Thus the band is named The New Iceland Liberation Orchestra!
21.00Café Rósenberg, KlapparstígKr 1500
Don Randi Quest – Píanisti stjarnanna heimsækir Ísland ásamt hljómsveit sinni. Einnig hinn frábæri trommari Tom Brechtlein, sem hefur í gegnum tíðina unnið með stjórstjörnum jazzins þám Wayne Shorter og Chick Corea – og gítarleikarinn John DePatie er einnig með í þessum félagsskap en hann hefur til langs tíma verið gítarleikari Nancy Sinatra.
Pianist to the stars for decades, Don Randi one of Los Angeles most sought after pianists and arrangers. Also in the Quest are drummer Tom Brechtlein and guitarist John DePatie, both seasoned veterans on the international jazz scene.
22.00Venue, Tryggvagata 22Kr 1500
Reginfirra – Útgáfutónleikar! Eftir firrtar upptökur í janúar síðastliðnum, kemur loks út reginfirrt plata með tónlist eftir firrta meðlimi Reginfirru. Á síðustu jazzhátíð voru þeir kynntir sem ungir, ferskir og spilaglaðir. Síðan þá hafa þeir unnið norrænu ungliðakeppnina Young Jazz Comets og hafa því ekki versnað.
Reginfirra – album release concert! The hard-to-pronounce name of the band can be translated as „Absolute Nonsense“. Reginfirra’s music is no nonsense though, and while the band members may lack some sophistication on stage, they will hopefully not disgust you. Last year they were introduced to audiences as an exploding force to be reckoned with. Since then they have won the Young Jazz Comets competition and we can therefor be certain that they are not getting any worse.
Reginfirra. All grown up now.

Reginfirra. All grown up now.

Mánudagur/Monday – August 16, 2010

18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00Norræna húsið/Nordic HouseKr 2000
Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari og tónsmiður kynnir splunkunýja tónlist af nýútkomnum geisladiski sínum “The Dream”, sem stökk beint i 20. sæti CJM yfir spilun í jazzútvarpi í Bandaríkjunum. Óskar Guðjónsson á saxófón, Þorgrímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á trommur.
Pianist Sunna Gunnlaugsdóttir presents her latest cd “The Dream” wich rose immediately to no 20 on the CJM playlist of jazz on radio in the USA.

Sunna Gunnlaugsdóttir

Sunna Gunnlaugsdóttir


21.00Risið/The Attic, Tryggvagata 20Kr 1500
K tríó.K tríó var stofnað í janúar 2008 og hefur spilað mikið saman síðan meðal annars á Jazzhátíð Reykjavíkur, Innipúka 2009 og öðrum viðburðum á Íslandi. Um miðjan september 2008 tók K tríó þátt í Young Nordic Jazz Comets keppninni. Tríóið stóð uppi sem sigurvegari. Í framhaldi af því spilaði tríóið stuttan norðurlandatúr meðal annars á Nasjonal Jazzscene í Osló, Rytmihäiriöklubi Helsinki, Christianshavns Beboerhus í Kaupmannahöfn, Mariehamn Jazzfestival Álandseyjum og Ylläs Jass og blús. Í byrjun árs 2009 gaf K tríó út sína fyrstu plötu. Platan fékk mjög góða dóma, m.a. 4 1/2 stjörnu í Morgunblaðinu. Síðasta sumar spilaði K tríó á North Sea Jazz í Rotterdam. Tríóið tók upp aðra plötu sína í desember 2009 sem kom út um miðjan júlí 2010.
K trio came full force on to the scene in january 2008 and won the prestigious Young Nordic Comets competition in september that same year. This lead to a tour of Scandinavia and their first cd, both to considerable critical acclaim. They released their second album in July 2010. Kristján Tryggvi Martinsson at the piano, Pétur Sigurðsson on bass and Magnus Trygvason Eliassen on drums.
K trio in concert

K trio in concert

Þriðjudagur/Tuesday – August 17, 2010

14.30 Syrland Studio, Vatnagardar 4 Ókeypis/Free
Showcase.Bein útsending á netinu frá Stúdíó Sýrlandi með nokkrum af okkar bestu ungliðum í jazzmúsík. Einnig kemur fram Kyrill Trío með Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni á bassa, þýska píanistanum Achim Kauffman og ameríska trommaranum Jim Black sem kynnir einnig listamennina fyrir viðstöddum og áhorfendum á netinu.
Showcase of the up and coming jazz talent in Iceland. Live over the internet from Syrland Studios, the finest recording facility you can find. Host will be drummer Jim Black who has been a frequent visitor in Iceland and is as familiar with the musical landscape as he is with the benevolent nature of the geothermal swimming pools.

Jim Black with Hilmar Jensson at the 2009 Reykjavik Jazz Festival

Jim Black with Hilmar Jensson at the 2009 Reykjavik Jazz Festival


imx_logo
18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum- Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00 Norræna Húsið/ Nordic House Kr 2000
Trio Kyrill.Achim Kaufmann er þýskur píanist sem hefur undanfarin ár verið búsettur í Amsterdam og tekið virkan þátt í hinu alþjóðlega jazzlífi borgarinnar. Hingað kemur hann til að búa sig undir Evróputúr í haust en músíkin á Kyrill er eitt af því ferskasta úr penna þessa snjalla spunameistara. Valdimar Kolbeinn Sigurjónson spilar á kontrabassa og Jim Black á trommur.
Achim Kaufmann is a Berlin-based pianist and composer who became fascinated by jazz and the possibilities of improvisation as a teenager. He studied music at the Conservatory in Cologne and took classes with creative masters such as Dave Holland, Steve Coleman, Muhal Richard Abrams, George Lewis, and Steve Lacy.
From 1996 to 2009, he lived in Amsterdam where he became part of that city’s internationally renowned improvised music scene. In 2007, he recorded kyrill, a set of compositions for piano trio featuring Valdi Kolli and Jim Black. Achim has played and/or recorded with Han Bennink, Chris Speed, Mark Dresser, George Lewis, Steve Swallow, Tobias Delius, Johannes Bauer, Gerry Hemingway, Wolter Wierbos, Lê Quan Ninh, Lori Freedman, Peggy Lee, Paul Rutherford, Peter Brötzmann, Thomas Lehn, Paul Lovens, Dylan van der Schyff, Tomász Stanko, Tristan Honsinger, Fred Lonberg-Holm, Mark Helias, John Hollenbeck, Simon Nabatov, Misha Mengelberg, David Stackenäs, Okkyung Lee, Steve Argüelles, Nils Wogram, and many more.
He was awarded the prestigious German SWR Jazz Award in 2001.

Achim Kaufman

Achim Kaufman


21.00 Café Rósenberg Kr 1500
Guitar Islancio.Það þarf vart að kynna Guitar Islancio, en Björn Thoroddsen gítarleikari hefur starfrækt tríóið síðan 1998 og ferðast með það um allan heim. Akústískur gítarjazz í hæsta gæðaflokki er á efnisskránni. Jón Rafnsson á bassa og Hjörtur Steinarsson á gítar.
Guitarist Björn Thoroddsen and Guitar Islancio have travelled the world since 1998 and played their irresistible hard swinging acoustic hot jazz. Bassist Jón Rafnsson and guitarist Hjörtur Steinarsson make up the trio with Björn.
Guitar Islancio. Photo by Michael G. Stewart

Guitar Islancio. Photo by Michael G. Stewart


Björn Thoroddsen with Ulf Wakenius at Reykjavik Jazz Festival 2009

Björn Thoroddsen with Ulf Wakenius at Reykjavik Jazz Festival 2009


22.00 Risið/The Attic, Tryggvagata 20 Kr 1500
Uwaga Wagga Tilurð „Uwaga Wagga“ má rekja til tónleikaferðalags hljómsveitarinnar Reginfirru um Norðurlöndin síðasta vetur. Meðal áheyrenda á tónleikum sveitarinnar í Óðinsvéum voru tveir ungir tónlistarmenn frá Bosníu og Póllandi, sem reyndust óvenjuvel að sér í íslenskri tónlist. Ákveðið var að ráðast í samstarf í einhverri mynd og kom Uwaga Wagga fyrst saman á Íslandi nú í vor, æfði, fór í stúdíó og hélt tónleika. Á tónleikum sveitarinnar á Jazzhátíð má heyra afrakstur þessarar vinnu og meira til, en hljómsveitin leikur frumsamda tónlist í frjálsum stíl.
International cooperative improvisation with Magnus Trygvason Eliassen (drums), Daniel Friðrik Böðvarsson (guitar) teaming up with Polish trumpeter Tomasz Dabrowski and Bosnian pianist Adi Zukanovic.
Uwaga Wagga

Uwaga Wagga

Miðvikudagur/Wednesday – August 18, 2010

18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00 Þjóðmenningarhús/Culture House Kr 3000
Django Bates Autumn Fires and Green Shoots ( solo piano). Ítalskir gagnrýnendur hafa kallað Django Bates “Monty Python píanósins” á meðan franskir fjölmiðlar hafa lýst því yfir að hann hafi “fullt vald á ofvirku ímyndunarafli” og danir afhentu honum Nóbelverðlaun jazzins, Jazzpar verðlaunin. Óstýrlát blanda eigin tónlistar og ófyrirsjáanlegra verka liðinna meistara gerir þetta að ógleymanlegir upplifun.
The Italian press dubbed him “ the Monty Python of jazz” the French press described him as being “In full Possession of an over active imagination” while the Danes awarded him” The Nobel Prize of Jazz” – The Jazzpar Prize- in 1997. A virtuoso on Piano and Eb Horn treasured for his off beat wit, Django Bates continues to astonish with his vast range of international projects. Ascribing his musical influences to his father’s record collection
( Romanian folk, African Music and Jazz.) Bates has made only one slip in his career- spending as much as two weeks at the Royal College of Music, before realising he wanted to be a self taught composer.
This performance features music from his 1994 album Autumn Fires (and green Shoots) reviewed by one critic as a “synthesis of virtuosity, subtle humour and a wonderful intellect” A Night not to be forgotten.

Django Bates - Solo Piano - Autumn Fires & Green Shoots

Django Bates - Solo Piano - Autumn Fires & Green Shoots


22.00Venue, Trygggvagata 22 Kr 1500
Park Project er hugarfóstur bassaleikarans Pálma Gunnarssonar sem hefur marga fjöruna sopið í blússpileríi. Ásamt honum: Kristján Edelstein á gítar, Kjartan Valdemarsson á hljómborð og Birgir Baldursson á trommur.Veteran bass player and one of Iceland’s best loved pop singers – Pálmi Gunnarsson presents a hard hitting blues instrumental ensemble; Kristján Edelstein on guitar, Kjartan Valdemarsson on keyboards and Birgir Baldursson on drums.
Copy of parkprojekt
23.00Risið, Tryggvagata 20 Kr 1500
Sveiflusextett Hauks Gröndal ásamt söngvaranum Martin Roy Wade. Gullaldarsvíng af bestu sort. Saxophonist Haukur Grondal leads his sextett in a set of golden era swing standards with singer Martin Roy Wade.
Haukur Gröndal

Haukur Gröndal

Fimmtudagur/Thursday – August 19, 2010

18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00 og/and 22.00 Þjóðmenningarhús/Culture House Kr 3000
Django Bates Belovéd Bird trio. Breski píanistinn og tónsmiðurinn Django Bates ólst upp með blöndu afrískrar tónlistar, rúmenskrar þjóðlagatónlistar og jazztónlistar í eyrunum. Honum hafa einungis einu sinni fallist hendur, en það var þegar hann rak augun í spjöldin á píanóum hinnar konunglegu tónlistarakademíu. Á þeim stóð að á píanóin ætti alls ekki að spila jazz. Þar með fór ásetningur hans um nám í tónsmíðum út um þúfur og hann er sjálfmenntaður í þeim fræðum. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir stórkostlegan feril, stór verkefni og stórar hljómsveitir. Sumir segja hann meðal þeirra sem mesta ábyrgð bera á endurreisn breska jazzins með aðkomu sinni að stórsveitinni Loose Tubes á níunda áratugnum. Eitt er víst að á plötum hans má maður eiga von á bæði píanósólóum og risavöxnum hljómsveitarverkum. Á unglingsárunum voru átrúnaðargoð Django Bates ekki úr röðum knattspyrngoða heldur fann hann sitt átrúnaðargoð í Charlie Parker, og á meðan aðrir fóru á völlinn sat Bates við og hægði á 78 snúninga plötum til að snúa ofan af hinum undraverðu saxófónlínum. Það var ekki fyrr en 2005 sem Django Bates lét verða af því að gera tónlist Charlie Parker skil og til þess valdi hann píanótríóið sem sinn vettvang. Meðspilarar hans á tónleikum á Jazzhátíð Reykjavíkur eru Peter Bruun á trommur og Petter Eldh á kontrabassa.

Having heard Charlie Parker’s music from my birth onwards, I knew it was good in the way that I knew that food was good. It was nutrition: a life force. At a time when my school friends started worshipping football players, my father seized his moment and lent me “Bird Lives”; a highly romanticized view of the life of Charlie Parker. I found my hero.
Living in a boring suburb of London, I was virtually alone in my special interest. I took to whistling Bebop tunes on train station platforms in the hope of meeting other Bird obsessives, and surprisingly this actually paid off. I met saxophonist Steve Buckley through a whistled song, (which is also the way that feathered birds meet), and we rehearsed every Sunday for a year. We ruined his father’s collection of Parker 78s by slowing them down to 16 rpm and lifting the needle up every 2 beats in order to unravel the fascinating horn lines.
In 2005 I was asked to contribute to a celebration of the life of Charlie Parker at Copenhagen Jazz House. I used the opportunity to arrange compositions that I most associated with Parker; tracks like Scrapple From the Apple, Hot House, Billie’s Bounce, Laura, My Little Suede Shoes, Now’s the Time…
The acoustic piano trio is a constellation beloved of jazz listeners and players throughout the world. Seeing the Bill Evans trio at Ronnie Scott’s club weeks before he died, and The Bad Plus in Cambridge, were two of my most memorable musical experiences. I decided to use the classic trio line-up for my exploration of Bird’s music.

django-bird-feather-hat-websize
Django Bates with Shreefpunk – This feels like the end.

Going places? Need wheels?

Going places? Need wheels?

Föstudagur/Friday – August 20, 2010

16.13 Rúv 1 -Beint/live Ókeypis/Free
Bein jazzútsending úr Útvarpshúsinu.Live Jazz on Rúv 1-FM 93.5. Open house at Efstaleiti 1.
18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour

20.00Norræna húsið/Nordic House Kr 2000
Stórsveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Mariu Babtist, en hún er þýskur stórsveitarhöfundur og píanóleikari.
The Reykjavik Big Band furthers its relationship with German big band composer and pianist Maria Baptist.

Maria Babtist

Maria Babtist


The Reykjavik Big Band and the Reykjavik Jazz Festival. Go together like bacon and eggs.

The Reykjavik Big Band and the Reykjavik Jazz Festival. Go together like bacon and eggs.


21.30 Þjóðmenningarhús/Culture House Kr 2000
Franski píanistinn Jean Marie Machado þykir vera á landamærum jazz- klassískrar og tónlistar Miðjarðarhafsins í tónsköpun sinni. Eftir hann liggja mörg heilleg verk eða svítur verka undir áhrifum frá framandi stöðum. Hann hefur gefið út plötur með tónlist sinni undir mörgum mismunandi kringumstæðum og með sólistum á borð við David Liebman, Andy Shephard og marga fleiri. Hér leikur hann sóló auk þess sem hann mun leiða íslenska kollega sína í gegnum hluta verkaskrár sinnar.
Jean Marie Machado is a uniquely talented composer and pianist at the crossroads of jazz, classical music and Mediterranean music. His groups and themed projects (Sœurs de sang, Andaloucia, Impressions) combine refined arrangements, narrative quality and jazz energy, performed by soloists such as David Liebman, Andy Sheppard and many others. Here he does a solo set and then leads a band of some of the finest practising jazz players in Iceland through some of his charts.
Jean Marie Machado's visit is made possible with the kind support of CULTURESFRANCE and the French Embassy in Reykjavik.

Jean Marie Machado's visit is made possible with the kind support of CULTURESFRANCE and the French Embassy in Reykjavik.


logo-culturefrance
22.30 Hafnarhús/Reykjavik Art Gallery Kr 2000
Ellen Kristjánsdóttir. Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir býður upp á nýja efnisskrá og nýtur fulltingis hljómlistarmanna á borð við Pétur Hallgrímsson gítarleikara og Matthíasar Hemstock ásláttarleikara.This vocal favorite has mesmerized audiences for a long time. Here Ellen Kristjánsdóttir presents a new program in a unique setting.
Moses Hightower. Þó að nafnið gefi það ekki til kynna þá er hér á ferðinni alíslenskur ryþmablús. Nýja platan “Búum til börn” hefur vakið verðskuldaða athygli.The name does not suggest it but this is a local rhythm’n blues ensemble with all the lyrics in Icelandic. Their recent release “Let’s make Babies” is all the rave.

Laugardagur/Saturday – August 21, 2010

18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum- Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00 Norræna húsið/ Nordic House Ókeypis/Free
IKI er tónlistarupplifun! Fallegar laglínur, skemmtilegar, lifandi og hljómfagrar sögur. Allt spunnið á staðnum! Öll tónlist IKI er spunnin á staðnum eða snarstefjuð. Í tónlistarsköpun IKI nota söngkonurnar bæði innsæi sitt og hvatvísi og hafa þær mikið unnið að því að syngja saman en á sama tíma gefa hver annarri pláss. Ungu söngkonurnar eru níu talsins og eiga rætur í Noregi, Finnlandi, Danmörku og á Íslandi en þær drógu sig saman árið 2009. Þær áttu það sameiginlegt að langa að prófa nýja hluti í tónlist. Söngkonurnar voru forvitnar um möguleika raddarinnar og að nota röddina sem hljóðfæri og spinna saman eins og heil hljómsveit. Allar eru þær sjálfstæðar söngkonur og hver með sína rödd og sérkenni.
IKI spinnur tónlist á staðnum, bæði frjálst og út frá mismunandi tónlistarlegum þemum. Sönghljómsveitin vinnur með hljóð, hljóma, tungumál, laglínur og takt – einungis með því að nota röddina. IKI leggur sig fram um að hafa áhrif á öll skynfærin, og notar til þess hreyfingu, liti og ljós. IKI lagar sig að umhverfinu hverju sinni og tekur inn áhrif frá hverjum stað sem sungið er á. Tónleikar með IKI eru þess vegna einstök upplifun fyrir bæði augu og eyru. IKI skapar tónlist í núinu – allt getur gerst!
IKI is EXPLOSION! Transparent harmonies. Fragile spider-web tales. Boiling, grim stories. Everything composed in the moment!
The main ingredients in IKI’s vocal music are spontaneity, improvisation and intuition. The nine young women, who have roots in Norway, Finland, Denmark and Iceland, came together in 2009 with a strong common denominator: curiosity and a desire to explore the human voices and its many sounds and facets. All nine musicians are individual singers with a strong profile.
IKI improvises totally free and out from various musical dogmas. They work with soundscapes, sound colour, language, harmony, melody and rhythm – only by using their voices. IKI experiments with awakening all senses, by using movement, colours, light and by incorporating the surrounding space in the music. A concert with IKI is a unique auditive and visual experience. IKI creates art in the now. Anything can happen!
IKI is: Anna Mose, Johanna Sulkunen, Mari Tveito, Sofie Holm, Mia Marlen Berg, Anna María Björnsdóttir, Guro Tveitnes, Kamilla Kovacs, Mette Skou.

iki_plakat_2utg

Nordisk Kulturfond helps make it possible for IKI to visit the festival

Nordisk Kulturfond helps make it possible for IKI to visit the festival


Fanfare de BelgistaN

La Fanfare du BelgistaN


Lúðraþytur frá BelgistaN. Þó lúðraþyturinn komi frá uppdiktuðu héraði í austurhluta Belgíu er enginn skáldskapur að þessi hópur fimm blásara og tveggja slagverksmanna skila óbrengluðum BelgistaN hljómnum til heimsbyggðarinnar. Djöfullegir dansar, villtir og dularfullir ryþmar í bland við dáleiðandi laglínurnar æra jafnt þá sem aðhyllast arabíska-, sígauna- eða jazzmúsík. Sérviskulegt hljóðfæravalið ýtir enn frekar undir svimandi hamingjusaman trans jafnt og dans þegar þessir gaurar skjóta upp kollinum. Leitið þá uppi á Jazzhátíð Reykjavíkur.
LA FANFARE DU BELGISTAN 

The Belgistan, a small autonomous (and purely fictional) region of Eastern Belgium, proudly presents its Fanfare: an ensemble of five horns and two percussionists bringing the unique sounds of Belgistani music to the world audience. 

Its hellish dances, wild and mysterious rhythms, and hypnotic melodies will appeal to both lovers of Arab and Gypsy music and fans of jazz. The Fanfare’s extensive collection of classic and exotic musical instruments (soprano, alto, tenor and baritone saxophones, trumpet, sousaphone, derbouka, tapan, karkabas, guembri and many more) produces the most eccentric sounds and eclectic experiences: from traditional Gypsy songs to original and modern compositions, as well as some Asian-inspired groove music and contemporary improvisation. The mood is happy, even dizzying. Trance and dance come together for an unforgettable experience. Look for them at this years Reykjavik Jazz Festival.
BelgistaN visits Reykjavik with the kind support of Wallonie Bruxelles International

BelgistaN visits Reykjavik with the kind support of Wallonie Bruxelles International


BelgistaN in concert!

egils gull flaska

Sunnudagur/Sunday – August 22, 2010

14.00Norræna húsið/Nordic House Ókeypis/Free
Spennandi tilraun fyrir alla fjölskylduna. Spilaðu á hljóðfæri á nýjan og spennandi máta.En exciting experiment for the whole family. Play an instrument under new and peculiar circumstances.

Reykjavik Jazz Festival and Tónastöðin. Partners in sound experiments.

Barnasmiðja Jazzhátíðar er unnin í samvinnu við Tónastöðina


16.00Kirkja óháða safnaðarins, Háteigsvegur 54 Kr 1500
Þakkargjörð. Vinir og velunnarar Björns R. Einarssonar básúnuleikara og hljómsveitarstjóra flytja honum þakkir í tali og tónum fyrir framlag hans til tónlistarlífsins.
Friends and fans of trombonist/band leader Björn R. Einarsson salute him and his contribution to music in Iceland.
17.00Þjóðmenningarhús/The Culture House, Hverfisgata 15 Kr 1500
Ástvaldur Zenki Traustason píanóleikari frumflytur efni af nýjum geisladiski sem ber nafnið Hymnasýn. Hér enduróma aldagömul sálmalög í bland við nýrri sálma eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Sálmarnir hafa verið færðir í nýjan búning þar sem einlægur og knappur stíllinn dregur fram þá fegurð sem býr í hinu einfalda og smáa sem einkennir þann ríka menningar- og tónlistararf sem sálmalögin eru. Meðreiðarsveinar eru þeir Scott McLemore á trommur og Þorgrímur Jónsson á bassa.
Ástvaldur Zenki Traustason piano player debutes music from his first CD, Hymnasýn. There he and his trio gives a new life to old and new Hymns. The simplicity of the music reveals the sincerity and beauty of the small and simple which is so characteristic in the musical heritage of the Hymns. On bass is Þorgrímur Jónsson and Scott McLemore plays the drums.
Ástvaldur Zenki Traustason

Ástvaldur Zenki Traustason


18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00 Grand hótel, Sigtún Kr 2000
Sveiflusextettinn undir stjórn Hauks Gröndal býður upp á gullaldarjazz með frábærum söngvurum. Söngvarinn Martin Roy Wade tekur lagið með sextettinum og Kristjana Stefánsdóttir syngur nokkur lög og dúetta með Wade. The Swing Sextett under the direction of saxophonist Haukur Gröndal presents a program based on the Golden Age of Jazz. Haukur has among other things done tributes to the likes of Lester Young and is well versed in the fine art of Swing music. Singers are Kristjana Stefánsdóttir and Martin Roy Wade.
Martin Roy Wade in concert.

Martin Roy Wade in concert.


21.00 Venue, Tryggvagata 22 Kr 1500
Hdden. Hdden byrjaði vorið 2009 í Hollandi sem þriggja manna tilraunaverkefni fyrir litlar Morton Feldmanstúdíur og snöfurmannlegan frídjass.  Trompetleikarinn Eiríkur Orri Ólafsson, gítarleikarinn Jasper Stadhouders og trommuleikarinn Onno Govaert kokkuðu saman nokkrar óværur og fyrr en varir hafði kántrítónlistin bæst út í grautinn.  Síðastliðið vor bættist píanistinn og altmuligmaðurinn Kristján Tryggvi Marteinsson í hópinn og kom með vel þegið K-vítamín.  
Allir eru þeir ungir að árum og hafa komið fram með ógrynni meistara og jafnvel unnið nokkra bikara á leiðinni.
Tónlistinni er best lýst sem kvartmílubraut eða sólbaði.
Hdden started out in Holland in 2009 as an experimental playground for little Morton Feldman studies and some good old free jazz rogering.  Trumpet player Eiríkur Orri Ólafsson, guitarist Jasper Stadhouders and drummer Onno Govaert made some noise together and soon enough they added some country music to the mix.  Last spring saw the addition of pianist and multi-instrumentalist Kristján Tryggvi Marteinsson, bringing a healthy dose of vitamin K.
All of them are quite young, they’ve all performed with countless maestros and some of them have even won some trophies along the way.
Their music is best described as a drag racing track or a tanning session in the sun.

Hdden

Hdden

Mánudagur/Monday- August 23, 2010

18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centruml – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
21.00Café Rósenberg Kr 1500
Skuggamyndir frá Býsans. Haukur Gröndal hefur um árabil kynnt sér
heimstónlist ýmiskonar. Afraksturinn má heyra á þremur plötum með
hljómsveitunum Schpilkas og Narodna Muzika. Á efnisskrá þessarar nýju
hljómsveitar eru grísk og makedónsk lög, seiðandi tónlist með sterkum
tyrkneskum-áhrifum. Haukur leikur á klarínett, Ásgeir Ásgeirsson á
tamboura, Róbert Þórhallsson á rafbassa og Erik Qvick á slagverk og
trommur.
Byzantine Silhoutte is Haukur Grondal’s latest dip into the pool of ethnic muic. Some of his earlier work in world music can be heard on his cd’s with Schpilkas and Narodna Muzika. The Byzantine Silhouette is a program of greek/macedonian songs, haunting music with a turkish influence. Haukur on clarinet, Ásgeir Ásgeirsson on tamboura, Erik Qvick on percussion and Robert Þórhallsson on electric bass.

Haukur Gröndal

Haukur Gröndal


Haukur and Borislav warm up at the Nordic “Green” House for a Narodna Muzika gig at The Reykjavik Jazz Festival 2009.

21.00Venue, Tryggvagata 22 Kr 1500
Stína Ágústsdóttir er starfandi söngkona í einni helstu jazzborgNorður Ameríku, Montreal og hefur á síðustu árum komist á lista
Montreal Mirror yfir bestu jazztónlistamenn borgarinnar. Á dagskránni
verða fjölbreytt lög m.a eftir Sigurð Flosason og Jóhann G. Jóhannsson
en með henni koma fram nokkrir af okkar bestu tónlistarmönnum og má
þar nefna Björn Thoroddsen, Sigurð Flosason og Einar Scheving.
Stina August is an Icelandic singer living in Montreal, one of the hottest places for jazz in North America. She has become one of
Montreals favorites and was even listed as one of the top local jazz
acts in the Montreal Mirror. She will perform a variety of songs from
different origins, among them songs by Icelandic Sigurður Flosason and
Jóhann G. Jóhannsson. Playing with her will be some very talented
local musicians such as Björn Thoroddsen, Sigurður Flosason and Einar
Scheving.

Stina August

Stina August


22.00Risið, Tryggvagata 20 Kr 1500
Pokadýrin. Magnús Trygvason Elíassen kynnir nýtt og spennandi tríó sem varð til á vordögum 2010 við djassdeild NTNU í Þrándheimi. Tríóið leggur áherslu á sterkar melódíur, og er undir áhrifum frá Charles Mingus, Albert Ayler og Paul Bley, sem og þjóðlagatónlist frá hinum ýmsustu hornum heimsins. Tríóið leggur það í vana sinn að nefna lagasmíðar sínar eftir dýrum á borð við túnfisk og japanskar salamöndrur.
The Wallabies. Drummer Magnus Trygvason Eliassen is currently the hardest working drummer in the Icelandic jazz business. He presents an exciting trio inspired by Charlie Mingus, Albert Ayler and Paul Bley as well as music from various parts of the world. Elsa Bergman on bass and Anja Lauvdal on piano and song titles out of sushi menus and japanese wild life documentaries.
images

Þriðjudagur/Tuesday – August 24, 2010

14.30 Syrland Studio, Vatnagardar 4 Ókeypis/Free
Showcase.Bein útsending á netinu frá Stúdíó Sýrlandi með nokkrum af okkar bestu listamönnum í jazzmúsík.
Showcase of the established jazz talent in Iceland. Live over the internet from Syrland Studios, the finest recording facility you can find.
imx_logo
18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum- Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00Norræna hús/Nordic House Kr 1500
Daníel Friðrik Böðvarsson og Ari Bragi Kárason. Gítarleikarinn Daníel Friðrik og trompetleikarinn Ari Bragi hafa þegar spilað sig upp að hlið þeirra bestu í íslensku jazzi þrátt fyrir ungan aldur. Ari Bragi stundar nám í New York og Daníel Friðrik heldur utan til framhaldsnáms í haust. Dúettinn leikur frumsamda tónlist þeirra félaga.
This duet of two of Iceland’s most promising artists presents original music. Trumpeter Ari Bragi currently lives in New York where he furthers his studies while guitarist Daniel Fridrik graduated last spring and plans to pursue the music abroad this coming fall. Although quite young they have both already played their way to the top of Icelandic jazz.
21.00Venue, Tryggvagata 20 Kr 2000
BRASS OVERDOSE!?
La Fanfare du BelgistaN. Djöfullegir dansar, villtir og dularfullir ryþmar í bland við dáleiðandi laglínurnar æra jafnt þá sem aðhyllast arabíska-, sígauna- eða jazzmúsík.
Hellish dances, wild and mysterious rhythms, and hypnotic melodies will appeal to both lovers of Arab and Gypsy music and fans of jazz.
Stórsveit Samúels Jóns Samúelssonar. Svar jazzins við stóriðjunni. Orkuver Samúels Jóns svíkur engan. The Samuel Jon Samuelsson Big Band. The Reykjavikjazz answer to renewable energy. This powerhouse big band will recharge your battery.

Samuel's Big Band at the 2007 Reykjavik Jazz Festival

Samuel's Big Band at the 2007 Reykjavik Jazz Festival


Miðvikudagur/Wednesday – August 25, 2010

10.00-16.00 Menningarmiðstöðin Gerðuberg/ Cultural Center Gerduberg Skráning
Masterclass í Jazzsöng í samvinnu Jazzhátíðar Reykjavíkur og Gerðubergs.
Söngkonan Kristjana Stefánsdóttir mun fara yfir helstu stílbrigði í sungnum jazzi s.s. ballad, medium swing, uptempo swing og latin. Einnig verður farið í spuna og blús. Meðleikari og meðkennari verður Agnar Már Magnússon en þess má geta að þau eru bæði starfandi kennarar við Tónlistarskóla FÍH. Tíu þátttakendur en öllum opið til áheyrnar.
Vocalist Kristjana Stefansdottir and pianist Agnar Már Magnússon lead this jazz vocal workshop/masterclass. They will cover the most common styles a jazz singer is calles upon to master. Ten active participants but open to all to listen.
18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum- Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour

Billie Holiday

Billie Holiday


21.00Café Rósenberg Kr 1500
Hrund Ósk Árnadóttir er ung söngkona sem hefur verið á íslensku tónlistarsenunni síðan hún vann söngvakeppni framhaldsskólanna 2005. Síðan þá hefur hún spilað með hinum ýmsu tónlistarmönnum. Sem stendur stundar hún söngnám í Berlín.
Jass og blús hafa löngum verið mikil ástríða hjá Hrund og Billie ein af hennar stærstu áhrifavöldum. Billie hafði ekki stærstu röddina en leyndardómurinn á bak við söngtöfra hennar fólst í því hvernig hún söng laglínurnar þannig að það bætti hundraðfalt við orðin sjálf. Þessu kvöldi verður varið í að fagna manneskjunni Billie og njóta þess sem hún gaf okkur öllum. Hljómsveitina skipa ekki ómerkari menn en; Agnar Már Magnússon – hljómborð, Ari Bragi Kárason – trompet, Einar Scheving – trommur , Jóel Pálsson – saxafónn , Þorgrímur Jónsson – bassi.
Hrund Ósk Árnadóttir is a young singer who has been on the Icelandic music- scene since 2005. Since then she has sung with various musicians. She is currently studying in Berlin.
Hrund has always had a passion for jazz and blues and Billie is one of her greatest influences. Billie didn’t have the “ greatest ” voice but the magic behind her singing is captured in her phrasing and her sense of time, which was that of a musician, her voice was her instrument. On this night we will embrace the person Billie and that which she gave us all. The band will consist of; Agnar Már Magnússon – keyboards/ piano, Ari Bragi Kárason – trumpet, Einar Scheving – drums, Jóel Pálsson – saxophone, Þorgrímur Jónsson – bass.

Hrund Ósk Árnadóttir

Hrund Ósk Árnadóttir

Fimmtudagur/Thursday – August 26, 2010

18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00 Menningarmiðstöðin Gerðuberg/ Cultural Center Gerduberg Kr 2000
“Hefðin heiðruð” Jazz standardar og bebop. Kristjana Stefánsdóttir tekur helstu perlur jazzsögunnar til kostanna.
Agnar Már Magnússon -pno, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson -bs, Scott McLemore drs.
Jazz vocalist Kristjana Stefánsdóttir leads her quartet through carefully selected numbers from the jazz songbook.
21.00 Venue, Tryggvagata 22 Kr 2000
Danski Hammondorgelleikarinn Kjeld Lauritsen ásamt Sigurði Flosasyni og Einari Scheving.Danish Hammond specialist Kjeld Lauritsen fires up a storm through the lesley accompanied by altoist Sigurður Flosason and drummer Einar Scheving.
Snorri Sigurðarson trompetleikari leiðir seinna settið með kvintett sínum, sem einnig telur Sigurð Flosason og Einar Scheving. Aðrir meðliðmir eru Eyþór Gunnarsson og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson. Ný músík eftir Snorra.Trumpeter Snorri Sigurðarson leads the second set. Original music for quintet.
hammond_poster_SMALL

Föstudagur/Friday – August 27, 2010

16.13 Rúv 1 -Beint/live Ókeypis/Free
Bein jazzútsending úr Útvarpshúsinu.Live Jazz on Rúv 1-FM 93.5. Open house at Efstaleiti 1.
18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
20.00 Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsi/Reykjavik Art Museum Kr 2000
Þýski básúnuleikarinn Nils Wogram heimsækir Jazzhátíð Reykjavíkur ásamt Nostalgia tríói sínu. Florian Ross á hammond orgel og Dejan Terzic á trommur.
Nils Wogram er þrátt fyrir ungan aldur margverðlaunaður tónlistarmaður. Hann hóf nám í básúnuleik í heimabæ sínum Braunshweig í Þýskalandi tólf ára gamall og var farinn að spila með jazzhljómsveit unga fólksins í neðra Saxlandi sextán ára. Sautján ára gamall vann hann til fyrstu verðlauna fyrir einleik á básúnu í keppninni “Jugend musiziert” og gekk í framhaldi af því til liðs við þjóðarjazzhljómsveit Þýskalands undir stjórn Peters Herbolzheimers. Áfram hélt sigurganga þessa snjalla tónlistarmanns á tíunda áratugnum þegar hann stundaði nám í “New School ” í New York bæði á lúðurinn og í tónsmíðum og útsetningum. Jimmy Knepper, Steve Turre og Slide Hampton voru meðal kennara hans þar auk Kenny Werners og Mariu Schneider. Fyrsti diskur hans í eigin nafni kom út 1994 – “New York Conversations” . Síðan hafa diskarnir haldið áfram að koma út og verðlaunin haldið áfram að hlaðast upp. Nils Wogram er meðal athyglisverðustu listamanna jazzins i Evrópu þessa dagana og hefur á sínum snærum fjölmargar starfandi hljómsveitir sem spanna allt frá dúettum til stórsveita.
Meðleikarar Nils Wogram í tríóinu Nostalgia eru tveir af eftirsóttustu jazzlistamönnum Þýskalands.
Organistinn (og píanistinn) Florian Ross hefur brýnt sitt framlag til jazzins með listamönnum á borð við Bob Brookmeyer, Vince Mendoza, Kenny Wheeler, Joe Lovano, John Hollenbeck og mörgum fleirum. Hann er líka margverðlaunaður og hlaut árið 2000 fyrstu verðlaun í Thad Jones keppni dönsku útvarpssveitarinnar fyrir tónsmíðar sínar. Florian Ross kennir líka jazzpíanóleik við Johannes-Gutenberg tónlistarháskólann í Mainz.
Trommuleikarinn Dejan Terzic er sjóaður í hrynrænni framvindu með stórsveitum Mariu Schneider, Peters Herbolzheimers og hljómsveitum útvarpsstöðvanna í Þýskalandi. Hann státar auk þess af mjög glæsilegum sigrum í smærri hljómsveitum með Lee Konitz, James Moody, George Garzone, Jerry Bergonzi, Tima Hagans og Enrico Rava svo einhverjir séu nefndir. Hann nam við fótskör ýmissa meistara trommuleiksins þám Jimmy Cobb, Bill Stewart, Marvin Smitty Smith. Terzic hefur auk þess verið verðlaunaður á festivölum í Evrópu bæði sem efnilegasti og síðar sem besti trommarinn á svæðinu. Hann var auk þess borgarlistamaður í Nuremberg 1997.
German trombonist NIls Wogram visits the Reykjavik Jazz Festival with his trio Nostalgia, featuring Florian Ross at the Hammond and Dejan Terzic on drums. Nils Wogram is one of Europes most exciting jazz artists. His ability on the trombone has been noticed and rewarded several times since Wogram took it up in his hometown of Braunshweig, Germany. As a soloist, composer and leader of several projects Wogram follows in the tradition of excellence in jazz and trombone playing set by masters such as Peter Herbolzheimer and Albert Mangelsdorf. Drummer Dejan Terzic and organist/pianist Florian Ross share the stage in the Nostalgia trio and are in their own right extremely important participants on the German and European jazz scene.
nostalgia trio

The Nostalgia trio visit is made possible by the Goethe institute in Copenhagen.

The Nostalgia trio visit is made possible by the Goethe institute in Copenhagen.


22.00Sódóma Kr 2000
Þrefaldur skammtur!
Horn. Jóel Pálsson leiðir nýja hljómsveit í gegnum splunkunýja músík. Það er ævinlega spennandi þegar Jóel telur í ný lög. Saxophonist Joel Palsson leads his new band in a selection of exciting new music. Some of Iceland’s finest musicians: Ari Bragi Kárason on trumpet, Eyþór Gunnarsson on keyboards, Davíð Þór Jónsson on keyboards and Einar Scheving on drums. Horn’s concert is sponsored by Farmers Market.
Perico Sambeat. Altó og Sópransaxafónleikarinn Perico Sambeat er einn af mikilvægustu jazzmúsíköntum Spánar í dag og hefur öðlast mikla virðingu á sínum stórkostlega ferli bæði í heimalandinu sem utan þess. Með tuttugu hljómdiska undir eigin nafni og nálægt hundrað sem hliðarmaður. Verk hans með Brad Mehldau, Kurt Rosenwinkel, Tete Montoliu, Michael Brecker, Pat Metheny til að mynda hafa vakið hvað mesta athygli. Á sínu lífskeiði hefur Perico fengið ótal verðlaun eins og “Bird Award” sem eru veitt af North Sea Jazz Festivalinu til að vekja athygli á tónlistarmönnum sem eiga skilið meiri athygli 2003, eða þau sem eru veitt fyrir bestu plötu ársins sem “Flamenco Big Band” hlaut. 2008 og 2009. Alto and soprano saxophonist Perico Sambeat is considered today as one of the most important spanish jazz musicians, owning a tremendous prestige with an extraordinary musical career inside and out of Spain. With twenty recordings as a leader and near a hundred as a sideman, they´re specially remarkable his works with musicians as Brad Mehldau, Kurt Rosenwinkel, Tete Montoliu, Michael Brecker, Pat Metheny, and many others. Along his life, he´s received numerous awards, such as the “Bird Award” given by the North Sea Jazz Festival to the musician deserving wider recognition (2003), or the one given to the best recording of the year to “Flamenco Big Band” (2008 and 2009). Here he performs with “The Asa trio”. Agnar Már Magnússon – organ, Andrés Þór Gunnlaugsson- guitar and Scott McLemore -drums.
BelgistaN Síðasti sjéns að ná þessum belgísku fjörkálfum áður en þeir kveðja jazzhátíð þetta árið. Last chance to experience this unbelievable energy before the Fanfare of BelgistaN’s visit comes to a close this year.
PericoSambeat2006eljunco3
Jóel Pálsson

Jóel Pálsson


FarmersMarketLogo2010

Laugardagur/Saturday – August 28, 2010

18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centrum – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
22.00 Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsi/Reykjavik Art Museum Kr 2500
Hammond í Hafnarhúsi!
Gert er ráð fyrir stormi! Það er eins gott að búast við vindhviðum þegar líður á kvöldið og lesleyin úr safni Þóris Baldurssonar byrja að snúast fyrir alvöru. Tríó Þóris verður gestgjafi þessarar uppákomu þegar amk fjórir hammondleikarar spreyta sig á þessum kadilakk hljómborðanna. Stundum fleiri en einn í einu. Florian Ross, Kjeld Lauritsen, Agnar Már Magnússon og Þórir Baldursson. Slitið verður út amk þremur trommuleikurum: Einari Scheving, Scott McLemore og Dejan Terzic. Blásarar verða amk Sigurður Flosason, Jóel Pálsson, Nils Wogram og Perico Sambeat.
It looks like it’s going to be a windy night when no less then four organists play a beautiful selection of this Cadillac among keyboards, courtesy of Þórir Baldursson. Three drummers are expected to be drained of their individuality in the process and several other musicians will be sacrificed on the altar of the electric organ.

Þórir Baldursson and his Hammond in duel with the Klais organ of Hallgrimskirkja at the 2009 Reykjavik Jazz Festival.

Þórir Baldursson and his Hammond in duel with the Klais organ of Hallgrimskirkja at the 2009 Reykjavik Jazz Festival.

Sunnudagur/Sunday – August 29, 2010

Í virðingarskyni verður lokadagur Jazzhátíðar Reykjavíkur helgaður Charlie Parker á afmælisdegi hans.
The Reykjavik Jazz Festival respectfully dedicates its final day to the memory of Charlie Parker.

Charlie Parker - August 29, 1920 – March 12, 1955

Charlie Parker - August 29, 1920 – March 12, 1955


14.00Norræna húsið/Nordic House Ókeypis/Free
Spennandi tilraun fyrir alla fjölskylduna. Spilaðu á hljóðfæri á nýjan og spennandi máta.En exciting experiment for the whole family. Play an instrument under new and peculiar circumstances.
Reykjavik Jazz Festival and Tónastöðin. Partners in sound experiments.

Tónastöðin and The Reykjavik Jazz Festival - Sound Partners

17.00 Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsi/Reykjavik Art Museum Kr 1000 – Ókeypis með miða á tónleika kl 21/ Free with a ticket to the concert at 21
Jon Hassell ræðir um tónlist sína og ýmislegt henni viðkomandi, þmt verkefni sitt með Brian Eno sem gengur ma út að kanna hvernig hið vitsmunalega og hið líkamlega tekst á í tónlistarmanninum.
Jon Hassell speaks about his craft including his thoughts on the split between the intellectual and the sensual in music, a topic up for discussion in a project with Brian Eno.
18.00 Uppsalir við Hótel Reykjavik Centruml – Hamingjustund/Happy Hour Ókeypis/Free
happy hour
21.00 Listasafn Reykjavíkur Hafnarhúsi/Reykjavik Art Museum Kr 3000
Hvort sem músík Jon Hassell hefur forskeytin jazz-, heims-, minimal- eða ambíent- þá er ljóst að áhrif hans á tónlist samtímans eru umtalsverð. Hér er á ferðinni sönn alheimsblanda frumstæðra ryþma og fjarlægra laglína. Sumir tala um tónlist fjórða heimsins og hljóðmynd framtíðarinnar á meðan aðrir segja að tónlist Hassells verði ekki staðsett í tíma eða rúmi. Tónleikarnir eru í samvinnu við PUNKT festvalið í Krisitiansand og haldnir með styrk frá sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi.Jon Hassell´s music has been labeled as jazz, world, minimal and ambient music. Regardless of the genre his contribution has been extremely influential on modern music. A worldly blend of fundamental rhythms and far fetched melodies combined with high tech processing. It has been dubbed Fourth World Music and the Soundtrack to the Future. It has also been called music from nowhere and no-when. Jon Hassell performs with norwegian electronics expert Jan Bang. The concert is presented as a cooperation between The Reykjavik Jazz Festival and Punktfestival in Norway and is made possible with the kind assistance of the US Embassy in Reykjavik.
American Embassy Reykjavik Seal
jh-selfportrait* 300dpi


jazzpassar